BAADER EIGNAST ALLT HLUTAFÉ Í SKAGINN 3X

Þýska fyrirtæki Baader hefur eignast allt hlutafé í Skaginn 3X, en samningur þess eðlis var undirritaður í dag.
Þýska fyrirtækið Baader keypti 60% hlutafjár í fyrirtækinu í lok árs 2020 eftir að fyrrverandi eigendur leituðu eftir fjárfestum til að styðja við félagið og rekstrarfélög þess. Baader hefur nú keypt eftirstandandi 40% hlut af IÁ-hönnun.


„Þetta eru góðar fréttir fyrir fyrirtækið og starfsmenn þess og fyrirtækið verður nú betur í stakk búið að takast á við skuldbindingar sínar og þær kröfur sem gerðar eru til fyrirtækisins,“
segir Jeff Davis, stjórnarformaður Skaginn 3X.


Skaginn 3X verður nú hluti Baader samstæðunnar og hefst samþætting starfsemi félaganna nú þegar og er reiknað með að henni ljúki á næstu mánuðum.


Jeff Davis, sem gengt hefur starfi stjórnarformanns, verður áfram í því hlutverki og Guðjón Ólafsson mun áfram gegna starfi sem tímabundinn forstjóri.

DEILA