Uglusafn í Sauðfjársetri

Uglusafn Ásdísar Jónsdóttur hefur leyst áletruðu könnurnar af hólmi í sýningarhillunni miklu á Sauðfjársetrinu.

Alls eru þarna um 89 uglur, en margar uglur í safninu eru of stórar fyrir hólfin.

Hillan mikla var áður geymsla fyrir reikninga á skrifstofu KSH á Hólmavík, sem bændurnir sóttu þangað þegar þeir áttu leið í kaupstaðinn

DEILA