Nýr slökkvibíll á Reykhólum

Slökkvilið Reykhólahrepps hefur fengið afhentan nýjan slökkvibíll og var bíllinn til sýnis á Reykhólum á laugardag

Nýi slökkvibíllinn, sem er 27 árum yngri en sá gamli, er af gerðinni FORD F450 Super Cap árg. 2005, einungis ekinn 19 þús. km.

Bíllinn er útbúinn með svonefndu One – Seven froðukerfi, en með því er froðuefninu blandað við vatn með þrýstilofti. Við það sjöfaldast rúmmál vatnsins, en jafnframt er notkun á froðuefninu u.þ.b. 9 sinnum minni en með eldri búnaði.

Nánast eins bíll er í Búðardal, með slökkvibúnaði frá sama aðila og hefur hann reynst vel.

Fordinn leysir af hólmi eldri bíl af gerðinni Magirus Deutz árg. 1978, hann er til muna hraðskreiðari og þar af leiðandi með betri viðbragðstíma og meiri slökkvimátt að auki.

DEILA