Konur nota Loftbrú meira en karlar

Sérstakt niðurgreiðslukerfi á innanlandsflugi sem er byggt á skoskri fyrirmynd var innleitt í september 2020.

Kerfið sem nefnist Loftbrú, veitti íbúum landsbyggðarinnar 40% afslátt af miðaverði á þrem flugleggjum til og frá Reykjavík á árinu 2020. Frá og með 1. janúar 2021 hafa notendum átt kost á að fá afslátt af sex flugleggjum ár hvert.

Einn hópur hefur sér­­stöðu og um hann gildir undan­­tekning frá reglunni um að eiga lög­­heimili á lands­­byggðinni. Börn sem eru með lög­­heimili á höfuð­­borgarsvæðinu en eiga foreldra eða for­­ráðamenn sem hafa búsetu á lands­­byggðinni munu einnig eiga rétt á Loftbrú. 

Samkvæmt meðfylhjandi súluriti eru konur í meirihluta notenda.

Vegna heimsfaraldurs Covid, sem hafði áhrif á fjölda farþega með innanlandsflugi, varð á nýting á niðurgreiðslukerfi Loftbrúar minni en áætlanir gerðu ráð fyrir en heildarkostnaður nam um 75,4 m.kr árið 2020.

DEILA