Karfan: Íslandsmeistarar Þórs mæta á Jakann!

Vestri tekur á móti Íslandsmeisturum Þórs mánudaginn 31. janúar, kl. 19:15 (ef verður leyfir!). Áhorfendur eru aftur leyfðir á íþróttaviðburðum, með eftirfarandi takmörkunum: 

– GRÍMUSKYLDA!
– 1 metra nálægðartakmörkun milli ótengdra gesta
– Gestir haldi kyrru fyrir í sætum sínum í hálfleik Miðasala á Stubbi og við innganginn. Frítt fyrir börn á grunnskólaaldri.

Yngri börn skulu vera í fylgd með fullorðnum. Þau sem ekki treysta sér í margmenni eða eru stödd í öðrum landshluta geta að sjálfsögðu horft á leikinn í beinni útsendingu hjá Viðburðastofu Vestfjarða og styrkt félagið með því að kaupa styrktarmiða á Stubbi eða leggja beint inn á reikning: 0556-26-1099 og kennitölu 651093-2449. Minnum einnig á að Körfuknattleikdeild Vestra er skráð á Almannaheillaskrá Skattsins og geta framlög 10.000 krónur og hærri veitt einstaklingum og atvinnurekstraraðilum skattaafslátt.

DEILA