Ísafjarðarbær: starfsemi Innheimtustofnunar á Ísafirði verði tryggð áfram

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar leggur áherslu á að starfsemi Innheimtustofnunar á Ísafirði verði tryggð áfram verði af tilfærslu verkefnisins frá sveitarfélögunum til ríkisins segir í ályktun bæjarstjórnar sem gerð var í gær.

„Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar leggur á það mikla áherslu að starfsemi Innheimtustofnunar sveitarfélaga verði tryggð áfram í Ísafjarðarbæ.

Í ljósi þess að nú er í skoðun tilfærsla á starfsemi Innheimtustofunnar sveitarfélaga frá sveitarfélögum til ríkisins er rétt að undirstrika mikilvægi þess að starfsemin verði áfram í sveitarfélaginu. Hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga starfa 8 manns á Ísafirði og hefur það verulega þýðingu fyrir samfélagið.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar gerir ekki athugasemdir við yfirfærslu verkefna Innheimtustofnunar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til ríkisins en bendir á að þar geta sóknarfæri skapast til fjölgunar starfa og fleiri verkefna með því að samþætta starfsemina við aðra starfsemi opinberra stofnanna á vegum ríkisins.“

Ályktunin var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum 9:0.

DEILA