Á Vestfjörðum greindust 16 ný smit í gær. Tólf þeirra voru á Patreksfirði, 3 á Ísafirði og eitt í Súðavík.
Ekkert smit er nú í Strandasýslu, en 2 á Reykhólum. Tíu smit eru á norðanverðum Vestfjörðum, 6 á Ísafirði, 2 á Þingeyri og einnig 2 í Súðavík. Á sunnanverðum Vestfjörðum eru 36 smit, 34 á Patreksfirði og 2 á Bíldudal.
Alls eru því 48 virk smit á Vestfjörðum.
https://www.ruv.is/kveikur/covid/
Nærri fimmtánhundruð smit greindust í gær á landinu öllu. Rúmlega 23 þúsund eru nú annað hvort í sóttkví eða einangrun. Á Landsspítalanum eru 33 sjúklingar með covid19, þar af eru 3 á gjörgæsludeild.