Veiðigjald 2022 ákveðið

Togarafloti Ísfirðinga í höfn. Mynd: Ísafjarðarhöfn.

Fiskistofa vekur athygli á að hinn 1. janú­ar taka gildi veiðigjöld sem ákveðin hafa verið fyr­ir árið 2022 og mun gjald á marga mik­il­væga nytja­stofna hækka tölu­vert.

Sem dæmi má nefna að gjald á þorsk mun hækka um 7% í 17,74 krón­ur á hvert óslægt kíló og gjald á ýsu hækk­ar um 4% í 17,11 krón­ur á hvert kíló. Þá hækk­ar gjald á stein­bít um 8% í 14,8 krón­ur og á skar­kola um 17% í 4,24 krón­ur.

Annars eru veiðigjöldin eftirfarandi fyrir hverja tegund:

  Hlýri10,04 
  Humar30,63 
  Karfi/gullkarfi 9,59
  Kolmunni 2,15
  Langa 7,19
  Langlúra19,39 
  Makríll 5,27
  Rækja/djúprækja 6,58
  Síld 4,76
  Skarkoli29,21 
  Skötuselur22,84 
  Sólkoli/þykkvalúra31,32 
  Steinbítur14,80 
  Ufsi 8,82
  Ýsa17,11 
  Þorskur17,74 

Veiðigjald fyrir hvern hval er sem hér segir: i) langreyður 59.442 kr., ii) hrefna 9.511 kr. Veiðigjald á sjávargróður er sem hér segir: 594 kr. á hvert landað tonn klóþangs, hrossaþara og stórþara (blautvigt).

Auglýsing þessi, sem sett er að fenginni tillögu embættis ríkisskattstjóra skv. 4. gr. laga um veiðigjald nr. 145/2018, sbr. einnig 8. gr. sömu laga, öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

DEILA