Vegna fjölda smita innan Patreksskóla undanfarnar vikur hefur aðgerðarstjórn almannavarna á Vestfjörðum tekið ákvörðun um að fella niður skólahald í Patreksskóla þar til eftir jólafrí. Ákvörðunin er tekin til að fyrirbyggja frekari útbreiðslu á Covid-19. Sömuleiðis fellur niður kennsla í Tónlistaskóla Vesturbyggðar á Patreksfirði.
Vesturbyggð hvetur alla íbúa til að gæta vel að persónulegum sóttvörnum. Einnig er því beint áfram til íbúa að fara sérstaklega varlega og draga úr öllu samneyti nema brýna nauðsyn beri til. Þeir aðilar sem hyggjast standa fyrir viðburðum í næstu viku eru hvattir til að að fresta þeim, til að koma í veg fyrir að hópsmitið muni teygja sig inn í jólahátíðina.
Samtals eru nú 29 í einangrun á Vestfjörðum og 99 í sóttkví flestir á sunnanverðum Vestfjörðum.