Rafmagn er einn stórvirkasti brennuvargur nútímans.
Á hverju ári verða margir eldsvoðar sem eiga upptök sín í rafbúnaði. Stundum kviknar í vegna bilunar en oftast er um að ræða að gáleysi í umgengni við rafmagn valdi slysum eða íkveikju.
Jólin eru hátíð ljóssins og er þá kveikt á fleiri ljósum og þau oft látin loga lengur en aðra daga ársins. Hluti af undirbúningi jólanna á að vera að ganga úr skugga um að þau ljós sem nota á séu í góðu lagi.
Óvandaður, skemmdur og rangt notaður ljósabúnaður getur valdið bruna og slysum.
Atriði sem vert er að hafa í huga:
- Látum aldrei loga á ljósunum á jólatrénu yfir nótt
eða þegar við erum að heiman - Hendum gömlum jólaljósum sem eru úr sér gengin
- Notum ætíð ljósaperur af réttri gerð, stærð og styrkleika
- Gætum þess að brennanleg efni séu ekki nálægt jólaljósum
- Óvarinn rafbúnaður getur valdið raflosti
- Vörum okkur á óvönduðum jólaljósum
- Inniljós má aldrei nota utandyra
- Förum eftir leiðbeiningum um uppsetningu og notkun
- Látum logandi kerti aldrei standa ofan á raftæki
- Góður siður er að skipta um rafhlöður í reykskynjurum fyrir hver jól