Hljóðver á Þingeyri

Kómedíuleikhúsið, atvinnuleikhús Vestfjarða, hefur komið sér upp hljóðveri. Hið ný opnaða hljóðver er til húsa í Leiklistarmiðstöð Kómedíuleikhússins á Þingeyri. Er hið kómíska hljóðver öllum nauðsynlegum tækjum búið til upptöku á töluðu máli. Það var byggðaverkefnið Öll vötn til Dýrafjarðar sem styrkti uppsetningu hljóðversins.

Kómedíuleikhúsið hefur í gegnum árin gefið út fjölda hljóðbóka sem eru allar aðgenilegar á streymisveitunni Storytel. Alls eru hljóðbækurnar nú orðnar 23 talsins. Kómedíuleikhúsið hefur ávallt þurft að fara af bæ til að taka upp þessar hljóðbækur og hefur því vitanlega fylgt gífurlega mikill aukakostnaður. Það er því alveg ljóst að hljóðver Kómedíuleikhússins er einstaklega kærkomið og næsta víst að áframhald verður á hljóðbókaútgáfu Kómedíuleikhússins fyrir Storytel og það frá Þingeyri.

Annar draumur hefur einnig ræst með tilkomu hljóðvers Kómedíuleikhússins á Þingeyri. Lengi hefur okkur langað að vera með eigið hlaðvarp, enda mikilvægt að fylgja straumum og stefnum í listinni. Vera þar sem njótendur eru. Nú er það mögulegt og 2. desmeber síðastliðinn hóf göngu sína, Leikhúsmál hlaðvarp Kómedíuleikhússins. Einsog nafnið gefur til kynna er þar fjallað um leikhúsið og verður það gjört á mjög breiðum grunni. Er um vikulegan hlaðvarpsþátt að ræða. Umsjónarmaður hlaðvarpsins er Elfar Logi Hannesson og upptökum stjórnar Marsibil G. Kristjánsdóttir.

Það heyrist því vel í hinu kómíska leikhúsi þessi dægrin. Hér er slóð á fyrsta þátt Leikhúsmála.

https://open.spotify.com/episode/2WUyDwdrWzAOvHyX9BnEfF?si=RPN25hP8SmG2X6j3ATr-Sg

DEILA