SJÓVÁ OG LANDSBJÖRG ENDURNÝJA SAMSTARFSSAMNING

Sjóvá og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa átt samstarf um forvarnir og öryggismál í yfir 20 ár og hafa félögin nú endurnýjað samstarfssamning sinn.

Sjóvá verður því áfram einn af aðalstyrktaraðilum Landsbjargar næstu 5 árin.

Markmiðið með samningnum er að halda áfram nánu samstarfi á sviði slysavarna, standa að metnaðarfullum forvarnarverkefnum og stuðla þannig í sameiningu áfram að bættu öryggi almennings og ferðamanna um allt land.

Samstarf okkar við Sjóvá hefur gert okkur kleift að halda úti enn öflugra starfi en ella og í sameiningu hafa félögin að auki staðið að fjölmörgum slysavarnaverkefnum sem snúast um að koma í veg fyrir slys hjá börnum, öldruðum og ferðamönnum, svo eitthvað sé nefnt. Sem dæmi um slík verkefni má nefna Safetravel appið, veðurkort á Safetravel.is og það þegar við stóðum, í samstarfi við aðra, að því að dreifa 70.000 endurskinsmerkjum til almennings síðastliðið haust.“ sagði Kristján Þór Harðarson framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Sem aðalstyrktaraðili tryggir Sjóvá einnig eignir og búnað björgunarsveita um allt land og sér til þess að félagar samtakanna séu vel tryggðir í þeim erfiðu aðstæðum sem þeir starfa oft við.

Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár:

„Samstarfið okkar við Landsbjörg, sem er nú orðið rúmlega 20 ára gamalt, hefur verið afar farsælt og það er okkur mikið ánægjuefni að geta haldið áfram að styðja við það mikilvæga starf sem aðildarfélög Slysavarnarfélagsins Landsbjargar vinna um allt land. Björgunarsveitirnar hafa margsannað mikilvægi sitt, ekki hvað síst á undanförnum árum þegar ofsaveður hafa geisað, eldfjöll gosið og aurskriður fallið. Á slíkum stundum sjáum við hvað það skiptir miklu máli að á Íslandi séu til staðar björgunarsveitir sem hafa yfir að ráða vel þjálfuðum mannskap og góðum tækjabúnaði. Það skiptir okkur hjá Sjóvá miklu máli að sýna samfélagslega ábyrgð í verki með þessum hætti og rímar starf Landsbjargar afar vel við okkar áherslur í samfélagsmálum og þau heimsmarkmið sem við vinnum sérstaklega að.“

DEILA