Neyðarkall frá aðstandendum skipulagðra tónleika og viðburða

Meðal þeirra listamanna sem senda stjórnvöldum opið bréf er Hnífsdælingurinn Bragi Valdimar Skúlason. Mynd:Dv.

Allmargir listamenn hafa sent frá sér sameiginglega yfirlýsingu sem nefnd er neyðarkall og er opið bréf til stjórnvalda.

„Við undirrituð, skipuleggjendur tónleika og viðburða á Íslandi, viljum vekja athygli á mikilvægi þess að
þrengja ekki enn frekar að ábyrgu viðburðhaldi á næstu vikum og mánuðum.
Viðburðaiðnaðurinn á Íslandi hefur tekið á sig gríðarlegt högg í heimsfaraldrinum og algert lífsspursmál er
fyrir tónlistarfólk og skemmtikrafta að komast aftur upp á svið og vinna vinnuna sína. Næstu vikur skipta
sköpum í þessum efnum og ljóst að ef meira verður þrengt að viðburðum, með tilheyrandi súrefnisskorti, þá
mun það enda með ósköpum.
Við sem hér tölum erum þess fullviss að við getum boðið fólki upp á örugga leið til þess að njóta menningar
og skemmtunar á skipulögðum sitjandi viðburðum — í umhverfi sem er gerólíkt samkomum þar sem margir
koma saman án sérstaks eftirlits.
Númeruð sæti, grímuskylda og/eða hraðpróf í þeim tilvikum sem reglur kveða á um, eiga að tryggja það að
viðburðir fari fram á öruggan hátt. Auk þess er bólusetningarhlutfall þjóðarinnar nú þegar mjög hátt.
Að því sögðu er það umhugsunarvert að yfirvöld hér á landi geri viðburðarhald erfiðara og flóknara í
framkvæmd hér en víða í nágrannaríkjum okkar, með auknum kröfum um hraðpróf, fjarlægðartakmarkanir og
hópamyndun. Endalaus óvissa, breytingar á sóttvarnarreglum og stefnubreytingar gera okkur ómögulegt að
skipuleggja viðburði — með tilheyrandi kostnaði, taprekstri, áhættu og hreinni tímasóun.
Við viljum að sjálfsögðu standa saman á næstu vikum, virða sóttvarnir og fylgja þeim reglum sem okkur eru
settar. En á móti viljum við að okkur sé sýnd sú virðing að dyrum menningarlífsins sé ekki skellt enn og aftur í
lás og þeir viðburðir sem þó eru í boði, innan settra reglna, séu talaðir niður af yfirvöldum og slegnir af.
Með von um gleðileg jól,“


Ísleifur B. Þórhallsson / Sena og Bandalag íslenskra tónleikahaldara — Andrea Bocelli, Jólagestir Björgvins,
Jól með Jóhönnu, Laddi 75, Of Monsters and Men – 10 ára afmælistónleikar, Björk – Live From Reykjavík,
Iceland Airwaves
Björgvin Halldórsson — Jólagestir Björgvins
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir — Jól með Jóhönnu
Víkingur Heiðar Ólafsson — Víkingur spilar Mozart
Sigríður Beinteinsdóttir — Á hátíðlegum nótum
Eiður Arnarsson/Todmobile ehf./TMB Events ehf. — Todmobile, Jesus Christ Superstar
Ari Eldjárn — Áramótaskop
Friðrik Ómar Hjörleifsson/Rigg viðburðir — Heima um jólin
Lára Sóley Jóhannsdóttir — Sinfóníuhljómsveit Íslands, Björk Orkestral
Einar Speight, Smári Hrólfsson/Dægurflugan — 75 ára afmælistónleikar Magga Eiríks, Trúbrot og ABBA
heiðurstónleikar, Eivør jólatónleikar
Bubbi Morthens — Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens
Emmsjé Gauti — Jülevenner
Steinþór Helgi Arnsteinsson — Sigurður Guðmundsson, Sigríður Thorlacius hátíðartónleikar
Páll Óskar Hjálmtýsson, Monika Abendroth — Páll Óskar & Monika
Hera Björk Þórhallsdóttir/HB Músík — Ilmur af jólum
Eyþór Ingi Gunnlaugsson — Hátíðartónleikar Eyþórs Inga
Bragi Valdimar Skúlason, Guðmundur Kristinn Jónsson, Guðmundur Pálsson, Karl Sigurðsson —
Jólatónleikar Baggalúts
Ásgeir Guðmundsson og Valdimar Guðmundsson — Valdimar jólatónleikar
Magni Ásgeirsson — Norðurljósin
Friðrik Dór, Jón Jónsson, Þorkell Máni Pétursson/Paxal ehf. — Bræður í Bæjarbíói
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson/Menningarfélag Akureyrar — La Traviata í Hofi

DEILA