Ellilífeyrisþegum fjölgaði um 3,9% árið 2020

Ellilífeyrisþegar voru rúmlega 51 þúsund í desember árið 2020 sem er fjölgun um 3,9% frá fyrra ári.

Þar af voru rúmlega 24 þúsund karlar og tæplega 27 þúsund konur. Um fjórðungur ellilífeyrisþega er yngri en 70 ára og tæplega helmingur er 75 ára eða eldri.

Tæplega tvö þúsund ellilífeyrisþegar bjuggu erlendis eða tæplega 4% af heild, en þeim hefur fjölgað síðustu ár. Frá árinu 2017 hefur ellilífeyrisþegum búsettum erlendis fjölgað um 45%.

Flestir lífeyrisþegar fá greiðslur bæði frá Tryggingastofnun og lífeyrissjóðum, og sýnir mynd hvernig greiðslur skiptast eftir kyni og greiðendum lífeyrisgreiðslna árin 2011 til 2020.

DEILA