Banaslys við Hvallátur

Lögreglan á Vestfjörðum greinir frá því í tilkynningu að um kl.10:13 í morgun hafi vegfarandi komið að bifreið sem hafði oltið út af Örlygshafnarvegi, skammt frá Látravatni við utanverðan Patreksfjörð. Ökumaðurinn, sem var einsamall í bifreiðinni, reyndist látinn. Svo virðist sem bifreiðin hafi runnið út af veginum og oltið a.m.k. eina veltu þar til hún staðnæmdist segir í tilkynningunni. Lögregla, sjúkra- og slökkviliðsmenn frá Patreksfirði fóru á vettvang. Beita þurfti klippum og öðrum viðeigandi búnaði til að losa ökumann úr bílflakinu.Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Vestfjörum en einnig er aðili frá rannsóknarnefnd samgönguslysa á vettvangi.

Fjölskyldu hins látna hefur verið tilkynnt um slysið. Rannsókn stendur yfir og ekki tímabært að fjalla frekar um það að svo stöddu.

DEILA