Grindhvalshræ dregin úr fjöru og um borð í Þór

Áhöfnin á varðskipinu Þór dró um fimmtíu grindhvalshræ úr fjörunni í Melavík á Ströndum um borð í varðskipið Þór í gær. Grindhvalina rak á land í Árneshreppi á Ströndum fyrr í mánuðinum. Hræin voru dregin með léttbátum varðskipsins og hífð með krana um borð í Þór.

Íbúar af bæjum í nágrenninu létu sitt ekki eftir liggja og léttu áhöfninni á varðskipinu lífið með því að draga hvalina nær flæðarmálinu með dráttarvél. Samvinna áhafnarinnar og íbúa svæðisins gekk afar vel.

Varðskipið var komið í Melavík um klukkan tíu í morgun og áhöfnin hófst þegar handa við að draga hræin úr fjörunni þegar í þangað var komið.

https://youtu.be/h58aMj0y6MU

Síðustu dýrin voru dregin úr fjörum við Árnes og litlu Ávík á sjötta tímanum. Varðskipið kemur til með að sigla með hræin út fyrir sjávarfallsstrauma þar sem þeim verður sleppt í hafið.

Páll Geirdal, skipherra á varðskipinu Þór, segir að verkefnið hafi gengið vonum framar.

„Þetta er búið að ganga afskaplega vel og það sem stóð upp úr í dag var samvinna fólksins hér á svæðinu og áhafnarinnar á Þór. Hún var algjörlega til fyrirmyndar. “ Segir Páll.

Síðustu hræin hífð um borð 
Mikil og góð samvinna var milli áhafnarinnar á Þór og íbúa á svæðinu.
DEILA