Fjórðungsþing: harmar gjaldtöku af jarðgöngum

Frá vígslu Bolungavíkurganga í september 2010. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Fjórðungsþing Vestfirðinga harmar samþykkt Alþingis í Samgönguáætlun 2020-2034 um að til framtíðar litið verði tekin upp gjaldtaka í jarðgöngum. Í ályktun þingsins um gjaldtökuna segir að jarðgöng á Íslandi, að undanteknum Hvalfjarðargöngum og Vaðlaheiðargöngum, hafi verið sett í framkvæmd til að leysa af hættulega fjallvegi eða fjallshlíðar með viðvarandi ofanflóðahættu.

„Þannig hefur verið komið á jafnræði íbúa landsins með því að byggja upp öruggar heilsárssamgöngur milli sveitarfélaga og eða milli byggðarlaga innan sveitarfélaga. Fjórðungsþing Vestfirðinga getur eingöngu fallist á gjaldtöku í jarðgöngum ef tryggt er að önnur heilsársleið sé fær.“

DEILA