MERKIR ÍSLENDINGAR – ÁGÚST H. PÉTURSSON

Ágúst H. Pétursson fæddist í Bolungarvík þann 14. september 1916. 


Sonur Péturs Sigurðssonar sjómanns og Kristjönu Þórunnar Einarsdóttur húsfreyju.

Fyrri kona Ágústs var Helga Jóhannesdóttur sem lést 1941 og eignuðust þau Kristjönu póstfulltrúa og Helga sendiherra.

Sonur Ágústs og Maríu Valdimarsdóttur var Emil Pétur skipstjóri sem lést 2015.

Seinni kona Ágústs var Ingveldur Magnúsdóttur sem lést 2011 og er sonur hennar Hafsteinn B. Sigurðsson bifreiðarstjóri en dætur Ágústs og Ingveldar eru Ásgerður hárgreiðslumeistari og Ásthildur skrifstofumaður.


Ágúst lauk prófi frá Héraðsskólanum að Núpi í Dýrafirði 1934.

Ágúst nam bakaraiðn í Alþýðubrauðgerðinni í Reykjavík og hlaut meistararéttindi 1942. Hann rak Brauð- og kökugerð í Reykjavík 1944-51 og á Patreksfirði 1951-54.
 

Ágúst sat í sveitarstjórn Patrekshrepps 1954-88, var sýslunefndarmaður, oddviti Patrekshrepps 1954-58 og 1978-82 og var sveitarstjóri 1958-63.

Ágúst var margsinnis í framboði í alþingiskosningum vestra eins og meðfylgjandi blaðaúrklippur sýna.

Ágúst var skrifstofustjóri hjá Hraðfrystihúsinu Skildi hf. á Patreksfirði en síðast starfaði hann hjá Hraðfrystihúsi Patreksfjarðar.

Ágúst sat í stjórn Bakarasveinafélags Íslands og Bakarameistarafélags Reykjavíkur, var einn af stofnendum Söngfélagsins Hörpu í Reykjavík, formaður FUJ og sat í stjórn SUJ, sat í flokksstjórn og miðstjórn Alþýðuflokksins 1942-85, formaður skólanefndar Iðnskólans og Patreksskólahverfis, sat í stjórn Sjúkrasamlags Patreksfjarðar og í sáttanefnd, var stofnfélagi Lionsklúbbs Patreksfjarðar og formaður hans.

Um Ágúst sagði Sighvatur Björgvinsson í minningargrein:

„Ágúst H. Pétursson var fjölhæfur maður. Hann var vel máli farinn og ritfær vel. Hann átti mikið og gott safn bóka og las mikið. Hann var framkvæmdasamur og áræðinn, kappsmaður til verka og frumkvæðismaður um margt. Hann var jafnvel að sér til handa og hugar, lagtækur smiður og hlífði sér aldrei.“

Ágúst H. Pétursson lést  þann 1. mars 1996.

 

Alþýðublaðið að greina frá framboði fyrir Alþýðuflokkinn

í fyrri alþingiskosningunum árið 1959 þar sem Ágúst

er í framboði í Barðastrandarsýslu.
.


Skutull birtir framboðslista Alþýðuflokksins í Vestfjarðakjördæmií seinni alþingiskosningunum árið 1959. Ágúst í þriðja sæti...Skutull birtir framboðslista Alþýðuflokksins í Vestfjarðakjördæmií  alþingiskosningunum árið 1963. Ágúst í þriðja sæti..
 .Skutull birtir framboðslista Alþýðuflokksins í Vestfjarðakjördæmií  alþingiskosningunum árið 1967. Ágúst í þriðja sæti...Skutull birtir framboðslista Alþýðuflokksins í Vestfjarðakjördæmií  alþingiskosningunum árið 1959. Ágúst í öðru sæti..
  
  

Skráð af Menningar Bakki.

DEILA