Meistaraverk í Hömrum í kvöld

Mánudaginn 27. september kl 20:00 verða haldnir hátíðartónleikar í Hömrum.   Það eru ísfirsku bræðurnir Mikolaj Ólafur píanóleikari og Maksymilian Haraldur Frach fiðluleikari sem bjóða til tónleika undir yfirskriftinni F.Chopin Tónlistarhátíðin á Ísafirði. Á efnisskrá verða frægustu kammerverk sígildrar tónlistar þ.e. F.Chopin píanósónata í b-moll og C.Franck sónata fyrir fiðlu og píanó.

Aðgangur er ókeypis en ef einhver vill styrkja þessa ungu tónlistarmenn þá er hægt að gera það með frjálsum framlögum í hljóðfærasjóð þeirra.

Mikolaj Ólafur Frach fæddist á Ísafirði árið 2000. Hann hóf píanónám hjá móður sinni, Iwonu Frach, sex ára gamall við Tónlistarskóla Ísafjarðar en nú stundar hann nám hjá próf. Janusz Olejniczak við Chopin-tónlistarháskólann í Varsjá. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna í tónlistarkeppnum hér heima og erlendis, meðal annars fyrstu verðlaun í píanókeppni Íslandsdeildar EPTA árið 2016 og fyrstu verðlaun í F. Chopin-píanókeppninni í Reykjavík 2019 en þar hlaut hann einnig verðlaun fyrir besta flutning á verki eftir Chopin, einnig er hann verðlaunahafi á Nordic Piano Competition í Ingesund 2019. Mikolaj hélt sína fyrstu einleikstónleika aðeins tólf ára gamall og hefur síðan komið reglulega fram bæði á Íslandi og erlendis en síðastliðið hefur hann spilað með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Daníels Bjarnasonar.

Mikolaj

Maksymilian Haraldur Frach er fæddur og uppalinn á Ísafirði. Hann hóf fiðlunám fjögurra ára gamall við Tónlistarskólann á Ísafirði hjá föður sínum Janusz Frach og lauk þaðan
framhaldsprófi með hæsu einkunn. Síðan var hann nemandi Guðnýjar Guðmundsdóttur við Listaháskóla Íslands en frá haustinu 2016 stundar hann nám við Tónlistarakademíuna í Kraká undir handleiðslu próf. Mieczyslaw Szlezer. Hann er verðlaunahafi alþjóðlegra tónlistarkeppna  m.a. Talents for Europe og hefur komið fram á fjölmörgum tónleikum bæði á Íslandi og erlendis.

Maksymilian

DEILA