Listi Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi

Eyjólfur Ármannsson skipar fyrsta sæti x-F framboðslista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi. Eyjólfur er lögfræðingur og formaður Orkunnar okkar sem eru samtök þeirra sem vilja standa vörð um sjálfsákvörðunarrétt Íslands í orkumálum. Eyjólfur hefur undanfarið meðal annars gætt hagsmuna landeigenda í Arnarfirði og Dýrafirði í þjóðlendumálum.

Annað sæti skipar Þórunn Björg Bjarnadóttir, landbúnaðarverkakona og fyrverandi bóndi. Þriðja sæti skipar Hermann Jónsson Bragason, vélstjóri/eldri borgari.  Fjórða sæti skipar Eyjólfur Guðmundsson, starfsmaður á sambýli fyrir fatlaða

Framboðslistinn

  1. Eyjólfur Ármannsson, lögfræðingur LL.M.
  2. Þórunn Björg Bjarnadóttir, landbúnaðarverkakona/fv. bóndi
  3. Hermann Jónsson Bragason, vélstjóri
  4. Eyjólfur Guðmundsson, vinnur á sambýli f. fatlaða
  5. Sigurlaug Sigurðardóttir, náttúrufræðingur
  6. Sigurjón Þórðarson, líffræðingur
  7. Sigríður Inga Sigurjónsdóttir, dýralæknir
  8. Bjarki Þór Pétursson, verkamaður/öryrki
  1. Einir G. Kristjánsson, verkefnastjóri/öryrki
  2. Sigurlaug Arnórsdóttir, öryrki
  3. Magnús Kristjánsson, eldri borgari
  4. Erna Gunnarsdóttir, öryrki
  1. Jóna Marvinsdóttir, matráður/eldri borgari
  2. Kristjana S. Vagnsdóttir, eldri borgari

Fréttin leiðrétt kl 18:13 skv nýrri fréttatilkynningu frá Flokki fólksins.

DEILA