Í huganum heim

Út er komin bókin Í huganum heim eftir Guðlaugu Jónsdóttur (Diddu), heimilisfræðikennara við Grunnskólann á Ísafirði.

Bókin byggir á æskuminningum hennar úr sveitinni á Melum í Hrútafirði, þar sem hún ólst upp. Lesendur fá að kynnast dýrunum í sveitinni, sveitastörfum og leikjum barnanna, þar sem hættur geta leynst víða. 

Í huganum heim er falleg og bráðskemmtileg bók sem brúar kynslóðabilið og er því kjörin til samlesturs barna og fullorðinna. 

Höfundurinn hefur einstaklega góða frásagnargáfu og í bókinni er mikill texti með ríkum orðaforða.

Fallegar myndir Hlífar Unu Bárudóttur prýða bókina og verður lífið á Melum ljóslifandi fyrir augum lesenda. 

DEILA