Gat á sjókví í Arnarfirði

Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlax á mánudaginn um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Haganes í Arnarfirði.

Gatið uppgötvaðist við neðansjávareftirlit og er viðgerð lokið. Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið á um 2 m dýpi og reyndist vera um það bil 2×2 metrar að stærð. Í þessari tilteknu kví voru um 120.000 laxar með meðalþyngd 0,8 kg. Neðansjávareftirlit var áður framkvæmt 31. júlí sl. og var nótarpoki þá heill.

Eftirlitsmaður Matvælastofnunar hefur skoðað aðstæður og viðbrögð fyrirtækisins og er atvikið til meðferðar hjá stofnuninni. Arnarlax lagði út net í samráði við Fiskistofu til að kanna hvort strok hafi átt sér stað.

Netanna var vitjað síðdegis á mánudag og þriðjudag. Á mánudag komu tveir fiskar í netin sem reyndust að öllum líkindum sjóbirtingar og á þriðjudag veiddist einn lax sem var rúm 2 kg. Fiskarnir verða sendir til Hafrannsóknastofnunar til greiningar.

DEILA