Næsta föstudag mun Fiskistofa standa fyrir kynningu á þremur sérverkefnum og verður kynningunni streymt á heimasíðu Fiskistofu.
Um er að ræða eftirfarandi verkefni:
Kortasjá. Tilgangur verkefnisins er að auðvelda aðgengi að svæðisbundnum upplýsingum sem tengjast lögum, reglum og öðrum ákvörðunum stjórnvalda er varða sjávarútveg og fiskeldi. Á vefsvæðinu er hægt að nálgast upplýsingar um reglugerðarhólf og skyndilokanir í rauntíma. Þá er verið að vinna í að koma að frekari upplýsingum inn á vefsvæðið, t.a.m. upplýsingum um hnit vegna framkvæmda við veiðivötn og hnit vegna netalagna.
Rekjanleiki. Tilgangur verkefnisins er að styrkja rekjanleika í upplýsingakerfi Fiskistofu, bæta rafræna skráningu og rafrænt eftirlit með fiskveiðum. Í því felst bætt skráning upplýsinga, betri rekjanleiki og bætt eftirlit með löndun.
Fiskistofa mun jafnframt kynna verkefnið mælaborð Fiskistofu, sem eykur aðgengi að upplýsingum um sjávarútveg í rauntíma. Mælaborðið er hugsað út frá notandanum og eykur möguleika aðila á að velja upplýsingar sem eru sérsniðnar að þeirra þörfum.
Tvö fyrrnefndu verkefnin voru unnin í tengslum við sérstaka fjárveitingu sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra vorið 2020 í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mun opna viðburðinn og er áætlað að hann taki um 60 mínútur.
Viðburðinum verður streymt kl. 13:00 föstudaginn 17. september, hægt er að horfa á hann hér: