Styrkir vegna náms í lýðháskóla

Ungmennafélag Íslands veitir ungu fólki sem hyggur á nám við lýðháskóla í Danmörku styrk fyrir námsárið 2021 – 2022.

UMFÍ og Højskolernes Hus í Kaupmannahöfn eru með samstarfssamning um verkefni tengt námsdvöl íslenskra ungmenna í dönskum lýðháskólum. Højskolernes Hus heldur utan um alla lýðháskóla í Danmörku og því er námsframboðið fjölbreytt.

Markmið með styrkveitingunni er að gefa ungu fólki tækifæri til að víkka sjóndeildarhring sinn. Einnig tækifæri til að kynnast nýju tungumáli og menningu, auka færni sína og þekkingu á völdu sviði í gegnum óformlegt nám og styrkja leiðtogatogahæfileika sína um leið.

Hægt er að sækja um styrk fyrir haustönn 2021 sem og heilu skólaári 2021 – 2022 og er umsóknarfrestur til 15. september.

Bjarki Óskarsson var nemandi í Vejle íþróttalýðháskóla nú í vor. Hann mælir hiklaust með því að fara í lýðháskóla. „Þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert og eitthvað sem allir ættu að upplifa“ segir hann og Eydís Ingadóttir sem var nemandi í fimleikalýðháskólanum Ollerup síðasta vetur segir: „Að vera nemandi í lýðháskóla kennir manni svo miklu meira en maður heldur í fyrstu. Þegar ég skráði mig í Ollerup bjóst ég við því að ég væri bara að fara að æfa fimleika og það yrði það eina sem ég myndi læra. Annað kom þó á daginn því að ég lærði svo miklu meira. Ég bætti mig í mannlegum samskiptum og þorði að stíga út fyrir þægindahringinn. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að öðlast þessa reynslu. Hún var svo sannarlega hverrar krónu virði“

DEILA