Nú er opið fyrir umsóknir um nýliðunarstuðning í landbúnaði í samræmi við reglugerð um almennan stuðning við landbúnað.
Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði.
Þeir einstaklingar einir geta sótt um stuðning sem uppfylla neðangreindar kröfur:
- Uppfylla skilyrði skv. 3. gr. reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað
- Eru á aldrinum 18-40 ára á því ári sem óskað er eftir stuðningi.
- Eru að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hafa leigt eða keypt búrekstur innan þriggja ára frá 1. janúar á umsóknarári.
- Hafa ekki áður hlotið nýliðunarstuðning samkvæmt reglugerð þessari að teknu tilliti til 17. gr.
- Hafa ekki hlotið nýliðunarstuðning í mjólkurframleiðslu eða bústofnskaupastyrki til frumbýlinga í sauðfjárrækt samkvæmt þágildandi reglum árin 2015-2016.
- Hafa með sannarlegum hætti lagt út fyrir fjárfestingu annaðhvort með eigin fé eða lántöku.
Fylgiskjöl með umsókn eru eftirfarandi:
- Yfirlýsing um að umsækjandi sé nýliði.
- Upplýsingar um eignarhald lögaðila úr fyrirtækjaskrá RSK, sé um lögaðila að ræða.
- 5 ára rekstraráætlun með greinargerð, unnin af fagaðila, svo sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
- Afrit af þinglýstum kaupsamningi vegna fjárfestingar sem óskað er stuðnings við.
- Afrit af reikningum fyrir kaupum.
- Afrit af leigusamningi, ef við á.
Áhugasömum umsækjendum er bent á að kynna sér breyttar forgangsreglur.