Níu leyfi verða veitt til sæbjúgnaveiða 2021/2022

Fiskistofa hefur birt auglýsingu þar sem óskað er eftir umsóknum um leyfi til veiða á sæbjúgum fiskveiðiárið 2021/2022.

Veiðileyfum verður úthlutað til skipa sem stundað hafa veiðar á sæbjúgum á síðustu þremur fiskveiðiárum. 

Alls verða leyfin níu.  Ef fleiri en níu aðilar sækja um að stunda veiðarnar skulu þeir sem mestan afla hafa ganga fyrir öðrum við úthlutun.

Sækja skal um veiðileyfi í UGGA , upplýsingagátt Fiskistofu og skulu fylgja umsókninni upplýsingar um veiðar umsækjenda á sæbjúgum þrjú síðustu fiskveiðiár.

Opið er fyrir umsóknir frá mánudeginum 16. ágúst til og með 22. ágúst 2021.

DEILA