Mjólkurbikarinn í knattspyrnu – Vestri – Þór Akureyri – 10. ágúst kl. 18:00

Í dag, þriðjudag, kl. 18:00 mætast Vestri og Þór frá Akureyri í 16. liða úrslitum í Mjólkurbikar karla.

Vestramenn ætla sér sigur í leiknum og að komast þannig í  í 8. liða úrslit!

Vestri er núna í fjórða sæti Lengjudeildarinnar með 25 stig en Þór í því níunda með 19 stig.

Vestri hvetur alla sem vettlingi geta valdið að mæta á völlinn og styðja við strákana, enda útlit fyrir gott veður og spennandi leik.

200 manns mega mæta og því um að gera að drífa sig að kaupa miða í Stubb appinu.

Grímuskylda er á leiknum og ársmiðar gilda EKKI í bikarkeppninni.

DEILA