Landhelgisgæslan aðstoðaði við Sæunnarsund

Kýrin Harpa varð þjóðþekkt þegar hún sleit sig lausa þegar leiða átti hana til slátrunar og synti yfir Önundarfjörð frá Flateyri, rúmlega tveggja kílómetra leið yfir í Valþjófsdal í októbermánuði árið 1987. Hún hlaut nafnið Sæunn í kjölfarið.

Nú um helgina þegar hið árlega Sæunnarsund fór fram var áhöfnin á varðskipinu Þór þeim tuttugu og átta sundköppum sem þreyttu sundið til halds og trausts.
Flestir sem tóku þátt náðu að synda frá Valþjófsdal til Flateyrar en það er sú leið sem kýrin Sæunn synti eftirminnilega í október árið 1987.

Tveir léttbátar varðskipsins Þórs voru til taks og við eftirlit auk báta frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg meðan sundkapparnir syntu yfir fjörðinn.

DEILA