Körfubolti: Linda Marín áfram með Vestra

Linda Marín Kristjánsdóttir hefur ákveðið að leika áfram með Vestra næsta vetur..

Linda kom til liðs við Vestra í byrjun þessa árs þegar fáar umferðir voru búnar af mótinu vegna Covid stopps.

Hún náði því að leika 16 leiki með liðinu og tók fljótlega við fyrirliðahlutverkinu. Á síðasta tímabili skilaði hún 7 stigum, 3 fráköstum og 1 stoðsendingu að meðaltali í leik.

Linda steig sín fyrstu körfuboltaskref á parketinu á Torfnesi undir merkjum KFÍ en hefur einnig leikið í meistaraflokki með Þór á Akureyri, Stjörnunni, Hamri og Breiðabliki.

Linda mun örugglega verða liðinu mikilvæg í baráttunni næsta vetur..

DEILA