Ísafjörður: 2 smit í Grunnskólanum – 80 í sóttkví

Frá því er greint á facebook síðu Grunnskólans á Ísafirði að upp eru komin 2 kórónuveirusmit í 1.bekk. Það hefur þau áhrif að allur 1. bekkur og stór hluti 2. bekkjar eru komnir í sóttkví út næstu viku, þar sem þeir hópar eru saman í frístund og dægradvöl. Auk þeirra eru 5 starfsmenn skólans einnig komnir í sóttkví, eða alls um 80 manns. Nokkrir nemendur í 2.bekk sem ekki voru með þeim smituðu í hópum sleppa við sóttkví.
Sóttkvíin nær aðeins til nemendanna sjálfra en ekki fjölskyldna þeirra.
Foreldrar og systkini þurfa samt sem áður að viðhafa svokallaða smitgát. Ef minnstu einkenna verður vart, á að fara í sýnatöku.
Allir nemendur sem komnir eru í sóttkví fara í hraðpróf á morgun, sunnudag.
Nánara skipulag hefur verið sent í tölvupósti til viðkomandi foreldra og inn á síðu Foreldrafélags GÍ.
DEILA