Arnarlax: rekstrarleyfi á Gileyri endurnýjað

Laxeldisstöðin á Gileyri, Tálknafirði. (Mynd: Guðm. Bjarnason)

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Arnarlax hf. til landeldis að Gileyri í Tálknfirði í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 4. júní 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 7. júlí 2021. Leyfið gildir til næstu 16 ára frá og með 18.8. 2021. Rekstrarleyfið heimilar hámarkslífmassa 200 tonn til seiðaeldis á laxi og bleikju að Gileyri í Tálknafirði.

Arnarlax hf. sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna 200 tonna hámarkslífmassa til fiskeldis að Gileyri í Tálknafirði. Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi var móttekin 28. september 2020. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Arnarlax hf að Gileyri í Tálknafirði FE-1183 en starfsemin er með gilt starfsleyfi frá Umhverfisstofnun sem er í gildi til og með 2. desember 2023.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

DEILA