Náttúrubarnahátíð á Ströndum 2021

Helgina 9.-11. júlí verður Náttúrubarnahátíð á Ströndum haldin með pompi og prakt í fimmta skiptið á Sauðfjársetrinu í Sævangi, rétt sunnan við Hólmavík. Þetta er fjölskylduhátíð þar sem gestir, börn og fullorðnir, fá kjörið tækifæri til að finna eða rækta sitt innra náttúrubarn á fjölbreyttum viðburðum sem einkennast af útivist, fróðleik og skemmtun.

Það er Náttúrubarnaskólinn sem stendur fyrir hátíðinni og Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur sér um hann. „Markmið Náttúrubarnaskólans er að líta sér nær og sjá hvað allt í kringum okkur er merkileg, að leita ekki langt yfir skammt. Þegar við þekkjum náttúruna hugsum við líka betur um hana,“ segir Dagrún Ósk. Náttúrubarnaskólinn stendur fyrir fjölbreyttum námskeiðum fyrir börn yfir sumartímann sem miðar að því að fræða börn um ólíkar hliðar náttúrunnar.

„Hátíðin hefst á föstudegi og fer að mestu fram utandyra, svo við hefjum hana á því að framkvæma veðurgaldur, til að tryggja gott veður um helgina,“ segir Dagrún. „Skipulagningin gengur mjög vel, við erum með glæsilega dagskrá, fjölbreytt og skemmtileg atriði, tónlist, spennandi smiðjur, gönguferðir og útivist. Ég hlakka mjög til. Sævangur er frábært svæði fyrir hátíð af þessu tagi, nálægt fjörunni, þar er fjölbreytt fuglalíf og plöntulífríki,“ bætir Dagrún við.

Fyrir þau sem mæta snemma verður sirkushópurinn Hringleikur á Hólmavík í vikunni með námskeið fyrir krakka og svo með sýninguna Allra veðra von í Sævangi á fimmtudeginum.

Á hátíðinni um helgina verða meðal annars á dagskrá kvöldskemmtun með Gunna og Felix, tónleikar með Sauðatónum, Stjörnu-Sævar, Benedikt búálfur og Dídí koma í heimsókn og Einar Aron töframaður verður með magnaða töfrasýningu. Það verða spennandi smiðjur með Arfistanum, Þykjó og Eldraunum, hægt að fara á hestbak, taka þátt í núvitundarævintýri með Kyrrðarkrafti, náttúrubarnajóga með Hvatastöðinni, útileikjum, gönguferðum, fjölskylduplokki, spurningaleik, hlusta á drauga- og tröllasögur, skjóta af boga og margt fleira.

Það er frítt á öll atriði hátíðarinnar en hún er styrkt af Uppbyggingasjóði Vestfjarða, Sterkum Ströndum og Orkubúi Vestfjarða. Það er hægt að kaupa súpu, grillaðar pylsur, samlokur og ís í Sævangi alla helgina. Gestum hátíðarinnar býðst að tjalda frítt á Kirkjubóli sem er beint á móti Sævangi en þar er þó ekki eiginlegt tjaldsvæði (ekkert rafmagn). Á Hólmavík er svo frábært tjaldsvæði og ýmsir gististaðir í grenndinni.

„Ég hvet náttúrubörn á öllum aldri til að koma og kynnast náttúrunni, leika sér saman og skapa skemmtilegar minningar,“ segir Dagrún að lokum.

Hægt er að kynna sér hátíðina á Facebook síðu Náttúrubarnaskólans, á natturubarnaskoli@gmail.com eða hjá Dagrúnu í síma 661-2213. Dagskrána í heild sinni má nálgast á: https://www.facebook.com/events/782069226047041

DEILA