Sleppið því að koma

Það væri synd að segja að maður missi hökuna í gólfið í hvert skipti sem ráðherra veldur manni vonbrigðum. Eins og nú þegar þær fréttir berast af því að framkvæmdum á Dynjandisheiði hafi enn eina ferðina verið slegið á frest. Vegna fjárskorts.

Sannar enn og aftur að það má ekki missa augun af þessu fólki. Sem segist skilja og viðurkenna að Vestfirðir hafi velkst um í sáru svelti alltof lengi. Flagga fögrum loforðum og yfirbót sem reynist svo lítið annað en heitt loft.

Merkilegt hvað þessi blessaði ríkiskassi virðist alltaf grunsamlega tómur þegar kemur að því að umbreyta djúpsárum skilningi í aðgerðir. Því lengra sem baukurinn ferðast frá fjármálaráðuneytinu því hærra glymur í honum tómahljóðið. Merkilegur fjandi.

En við hverju á maður svo sem að búast? Þegar við getum ekki einu sinni klárað löngu fjármögnuð ofanflóðaverkefni til að verja þorpin. Fyrr en einhverjum áratugum of seint. Vegna sofandaháttar. Þessi vanvirðing við öryggi fólks og þessi síendurteknu svik við æðakerfi samfélaganna er auðvitað til háborinnar skammar.

En vísast á maður ekki að vera að kvabba þetta. Þakka frekar fyrir vegstubbana sem þó er verið að tjasla saman á kjálkanum. Stubbum, sem hampað er sem nýframkvæmdum, en eru í reynd tilfærsla á fé sem annars ætti að fara í viðhald á svæðinu og verður til þess að aðrir lúnir vegir um fjölfarna ferðamannastaði drabbast ofan í foraðið á sér. Það er öll innspýtingin. Viðspyrnan. Bragabótin.

Það getur ekki verið að ég sé einn um að vera orðinn þreyttur á rykinu sem þyrlast upp undan lakkskóm þessara loforða.

Já, ég er að horfa á þig kæri samgönguráðherra. Og já, ég er að horfa á þig kæri fjármálaráðherra. Þið eruð góðir menn og ég vil trúa því að þið meinið vel. Ég verð samt að biðja ykkur um eitt. Næst þegar þið birtist í ofboði með tárvot hvolpaaugu eftir hamfarir, segið okkur þá bara eins og er. Að ykkur finnist svæðið ekki nægilega mikilvægt til að halda úti grunnkerfum. Eða að þið gefið því ekki gaum að íbúar fjórðungsins eigi rétt á lágmarks þjónustu.

Þið sóið tíma fólks með því að fylla verðmætt vestfirskt fjallaloft af innantómum loforðum. Þetta er komið gott. Ef þið getið ekki sagt satt og staðið við stóru orðin, sleppið því þá frekar að koma.

Guðmundur Gunnarsson

Höfundur er fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi.

DEILA