Ísafjörður: fyrsta skemmtiferðaskipið kom í gær. Búst við 60 skipum í ár.

Um sjöleytið í gærmorgun kom fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins til Ísafjarðar. Það er Franska lúxusskipið LE DUMONT D’URVILLE frá Ponant skipafélaginu. Skipið tekur 184 farþega. Það hefur komið til Ísafjarðar í mörg ár. Þetta kemur fram í færslu hjá Ísafjarðarhöfn.

Umrætt skipafélaghefur verið á einum hraðasta vexti í heiminum í fjölgun svokallaðra Leiðangursskipa.
Áætlað er að það geti verið um það bil 60 skipakomur í sumar, en listinn breytist ört og ber að taka hann með varúð frá degi til dags.


Á myndinni má sjá Sheng Ing Wang hafnsögumann Ísafjarðarhafnar færa Regis Marie Jean Jacques Daumesnil skipstjóra á Le Dumont D’Urville minningarskjöld Ísafjarðarhafnar þar sem skipið er að koma í fyrsta skipti til Ísafjarðar

DEILA