Hreinni Hornstrandir: Hlöðuvík hreinsuð

Týr í Ísafjarðarhöfn. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Áttundu hreinsunarferð Hreinni Hornstranda fór fram um helgina. Hreinni Hornstrandir eru félagasamtök sem halda utan um ruslahreinsun á Hornströndum á ári hverju.

Hreinsað var að þessu sinni í Hlöðuvík en þar hófst hreinsunarátakið einmitt fyrir sjö árum árið 2014. Harðduglegur 25 manna hópur hélt af stað í hádeginu á föstudaginn og hóf strax að hreinsa fjörurnar. Hópurinn tjaldaði og gisti á tjaldsvæðinu í Hlöðuvík en fékk svo liðsauka á laugardeginum frá Seiglunum, Kvennasigling á skútu sem er á ferð um landið. Þær lögðu hönd á plóg í hreinsuninni.

Varðskipið Týr og áhöfn þess fluttu svo ruslið út í skip og þegar allt var komið um borð var slegið upp grillveislu og siglt á leið heim. Í frétt um málið frá forsvarsmönnum átaksins segir: „Eigum við þeim sérstaklega mikið að þakka eins og alltaf. Þrátt fyrir að víkin hafði verið hreinsuð áður og það skilað um 5 tonnum af rusli var tilfinning hópsins nú að þetta væri engu minna en þá, hugsanlega meira sem er mikið umhugsunarefni. Allt í allt tókst þó hreinsunin vel.“

Styrktaraðilar ferðarinnar eru: Landhelgisgæsla Íslands, Ísafjarðarbær, Umhverfisstofnun, Sjóferðir, Borea Adventures Iceland og Terra.

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar tóku af meðfylgjandi mynd af hópnum á varðskipinu Tý í lok dags í gær ásamt ruslinu.

DEILA