Geirnyt

Geirnyt (Chimaera monstrosa) er aðeins eitt af nokkrum nöfnum sem til eru fyrir þessa fisktegund. Hún hefur verið nefnd hámúshafmúsrottufiskur og jafnvel særotta. Á ensku gengur hún oftast undir heitinu „rabbit fish” eða „rat fish”.

Geirnyt er brjóskfiskur og tilheyrir ætt þeirri sem nefnist hámýs (Chimaerea). Hún getur orðið allt að 120 cm að lengd en er oftast 70-95 cm löng. Hrygnur eru miklu stærri er hængar.

Geirnytin er hausstór og trjónustutt, með lítinn kjaft neðan á miðjum haus, og hefur sérkennilegar, samvaxnar tennur. Augu geirnytarinnar eru stór og hún er gild í framan en fer mjókkandi og endar í löngum mjóum halaþræði sem hefur orðið tilefni rottuhlutans í mörgum nöfnum hennar.

Roðið á geirnytinni er slétt og hreisturslaust, hún er brúnleit að ofan, silfurgrá eða bronsbrún á hliðum og hvít að neðan.Afar lítið er vitað um ýmsa þætti í líffræði þessarar tegundar en vitað er þó að hún heldur sig við botninn á 100 til 1000 metra dýpi. Geirnyt finnst á norðaustanverðu Atlantshafi, frá Finnmörku, meðfram Vestur-Noregi, í norðanverðum Norðursjó og umhverfis Færeyjar og Ísland. Geirnyt hefur einnig fundist í Miðjarðarhafi, meðfram Atlantshafsströnd Marokkó, umhverfis Azor-eyjar og í Biscaya-flóa.

Við Ísland virðist geirnytin vera algengust undan suður- og suðvesturströndinni eða frá Dyrhólaey til Breiðafjarðar. Algengt er að sjómenn fái hana í veiðarfæri vestur af Reykjanesi.Helsta fæða geirnytarinnar eru ýmsir hryggleysingjar, svo sem skeldýr, krabbadýr og ormar. Geirnytin hrygnir langoftast tveimur eggjum (pétursskipum), um 17 cm á lengd og 3 cm á breidd. Afkvæmin eru 11 cm á lengd við klak.

Af visindavefur.is

DEILA