17. júní 2021 í Bolungarvík og á Bíldudal

Bolungarvíkurkaupstaður býður upp á hátíðardagskrá í tilefni af þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga 17. júní.

Dagurinn hefst með víðavangshlaupi frá Ráðhúsinu. Skráning fer fram á staðnum og er hlaupið opið öllum aldurshópum.

Fleytukeppni verður í Hólsá þar sem keppendur mæta með fleytur sínar. Fleytan skal vera heimasmíðuð, hver keppandi má aðeins hafa eina fleytu og hún skal að lágmarki vera 20 cm löng.

Gengið verður í skrúðgöngu frá Ráðhúsinu að Félagsheimilinu þar sem hátíðardagskrá hefst. 

10:00 Víðavangshlaup
11:00 Fleytukeppni í Hólsá
12:30 Skrúðganga frá Ráðhúsi
12:40 Hátíðardagskrá við Félagsheimilið
13:00 Púttmót

Í Vesturbyggð er hátíðardagskrá við Skrímslasetrið á Bíldudal kl. 14:00 – 16:00

Á dagskrá þar er:

  • Skrúðganga
  • Karamellukast
  • Pedalabílar
  • Ormurinn
  • Skrímslaveiði
  • Skotfimi
  • Ringó
  • Krossnet
  • Töframaðurinn Einar Mikael
  • Hátíðarræða
  • Tónlist
  • Pylsusala
  • Veitingar í Skrímslasetrinu
  • Skrímslasýningin opin
  • Fánar og blöðrur og 17. júní snuð

Gleðilega þjóðhátíð!

DEILA