SPOR- gagnvirk danssýning fyrir börn

Sviðslistahópurinn Bíbí & Blaka kynnir verkið SPOR, gagnvirka danssýningu fyrir börn frá 5 aldri.

Í fréttatilkynningu segir að SPOR sé könnunarleiðangur þar sem leitað er að galdrinum sem felst i orkunni – kraftinum sem býr i öllu.

„Áhorfendum er boðið í heim þar sem orkan er allstaðar sjáanleg, heyranleg og snertanleg. Orkan í hafinu, á jörðinni, í geimnum og orkan í okkur sjálfum.

Börnin munu fylgja dansandi óbeisluðum orkugjöfum auk þess að kanna undarlegt umhverfið á eigin vegum. Hvaða orka er það sem kviknar í myrkrinu? Erum við orkusugur eða gefum við jafn mikið og við þiggjum?“

Bíbí & Blaka er hópur listamanna sem að vinnur að sviðsverkum fyrir ung börn og aðstandendur þeirra. Hópurinn samanstendur af Tinnu Grétarsdóttur danshöfundi, Sólrúnu Sumarliðadóttur tónskáldi og Guðnýju Hrund Sigurðardóttur sviðshönnuði auk þeirra flytjenda sem að eru í verkunum hverju sinni.
Bíbí & Blaka hefur ferðast víða bæði innanlands sem erlendis og sýnt verk sín í leikskólum, á hátíðum, í menningarhúsum og leikhúsum.

Lengd sýningar: u.þ.b 40 mínútur
Fjölda þátttakenda: 25 á hverri sýningu.
Sýningar: 4
29. maí kl.14:00 og 16:00
30. maí kl. 13:00. og 15:00

SPOR er unnið í samstarfi við listamenn frá Noregi, Finnlandi, Grænlandi og Færeyjum og mun ferðast og þróast áfram í Grænlandi og Færeyjum.

Miðasala á TIX.

DEILA