Raunfærnimat -hentar fólki sem er á krossgötum

Nú í byrjun júní býður Fræðslumiðstöð Vestfjarða upp á námskeið og raunfærnimat í almennri starfshæfni.

Hér er átt við þá hæfni (leikni, viðhorf og breytni) sem einstaklingur þarf að búa yfir eða tileinka sér til þess að taka á virkan hátt þátt í samfélaginu, vera á vinnumarkaði, þróast í starfi og geta tekið á sig meira krefjandi störf.

Ávinningur: Hjálpar við undirbúning fyrir velgengni á vinnumarkaði með því að draga fram styrkleika; fá tækifæri til að styrkja þá þætti sem upp á vantar; bera styrkleika saman við kröfur í ákveðnum störfum.

Raunfærnimatið hentar vel fólki sem er á krossgötum, er leitandi eða er að velta fyrir sér nýju starfi. Hentar einnig fólki í starfsendurhæfingu sem t.d. hefur orðið fyrir kulnun, því þátttakendur læra inn á eigin styrkleika og veikleika og fá nýja sýn á sjálfa sig.

Fyrirkomulag:
1. Viðtal við náms- og starfsráðgjafa
2. Kynning á ferlinu
3. Vinnustofur, einstaklings- og hópverkefni – samtals í 5 skipti. Í vinnustofum gera þátttakendur eigin færnimöppu og farið er í gegnum matslista og skoðað hvaða hæfni þarf í hin ýmsu störf.
4. Raunfærnimat þar sem matsaðili fer í gegnum skimunarlista með hverjum þátttakanda í einkaviðtali og hjálpar viðkomandi að staðsetja færni sína.
5. Útskrift með formlegum lokum á raunfærnimatinu.
6. Eftirfylgd með viðtali við náms- og starfsráðgjafa. Að þekkja hæfni sína getur hjálpað einstaklingi að taka næstu skref í starfsþróun og ákveða hvers konar störf hann/hún vill vinna eða ákveða á hvaða sviðum nám eða þjálfun ætti að vera. Aðstoðað er við að skrifa Ferilskrá (CV) ef t.d. er verið að sækja um starf.

Raunfærnimatið er ætlað fólki sem er eldra en 23 ára og er frítt ef fólk hefur ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi.

DEILA