Í fyrrakvöldi var framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi kynntur. Áður hafði verið kosið í þrjú efstu sætin á auknu kjördæmaþingi þann 27. mars sl., uppstillinganefnd sá um að stilla upp á listann frá fjórða sæti.
Valgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar leiðir listann „Ég er þakklátur fyrir traustið sem félagar mínír í Norðvesturkjördæmi hafa sýnt mér. Ég er fullur bjartsýni, fús til verka og ég hlakka til samstarfsins við meðframbjóðendur mína og Samfylkingarfólk um allt kjördæmið“. – Valgarður Lyngdal Jónsson.
Listinn er svo hljóðandi.
- Valgarður Lyngdal Jónsson – Akranes
- Jónína Björg Magnúsdóttir – Akranes
- Sigurður Orri Kristjánsson – Reykjavík
- Edda Katrín Einarsdóttir – Ísafjörður
- Ída Finnbogadóttir – Borgarbyggð
- Gunnar Rúnar Kristjánsson – Austur Húnavatnssýsla
- Ingimar Ingimarsson – Reykhólar
- Steinunn Sigurbjörndóttir – Dalasýsla
- Guðríður Sigurjónsdóttir – Akranes
- Gylfi Þór Gíslason – Ísafjörður
- Guðný Friðfinnsdóttir – Sauðárkrókur
- Oddur Sigurðarson – Hvammstangi
- Salvör Svava G. Gylfadóttir – Borgarbyggð
- Guðni Kristjánsson – Sauðárkrókur
- Sigurbjörg K. Ásgeirsdóttir – Patreksfjörður
- Björn Guðmundsson – Akranes