Afli eykst milli ára

Heildarafli í apríl 2021 var tæplega 115 þúsund tonn sem er 30% aukning frá því í apríl 2020. Botnfiskafli var rúmlega 47 þúsund tonn samanborið við 45 þúsund tonn í apríl í fyrra. Af botnfisktegundum veiddist mest af þorski eða rúm 23 þúsund tonn. Uppsjávarafli í apríl var nær eingöngu kolmunni, 65 þúsund tonn samanborið við tæp 42 þúsund tonn í apríl árið á undan.

Á tólf mánaða tímabili, frá maí 2020 til apríl 2021, var heildaraflinn rúmlega 1,1 milljón tonn sem er 15% meira magn en var landað á sama tólf mánaða tímabili ári áður. Þar af var uppsjávarafli 595 þúsund tonn, botnfiskafli 479 þúsund tonn og flatfiskafli tæp 26 þúsund tonn.

Afli í apríl 2021 metinn á föstu verðlagi bendir til 8,8% verðmætaaukningar miðar miðað við apríl í fyrra.

Upplýsingar um fiskaflann eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

DEILA