Vegfarendur fá upplýsingar beint í snjalltækin

Brátt geta vegfarendur fengið upplýsingar um færð og ástand vega beint í leiðsögukerfi í snjalltækjum sínum.

Vegagerðin hefur hafið útgáfu þessara upplýsinga á samevrópskum DATEXII (Datex2) staðli og verða upplýsingarnar þar með gerðar aðgengilegar alþjóðlegum leiðsöguþjónustum. 

DATEXII staðallinn gerir erlendum leiðsöguþjónustum kleift að sækja þær upplýsingar sem Vegagerðin birtir um vegakerfið, svo sem veður og færð, í rauntíma í leiðsögukerfum sínum hvort heldur er í farsímum eða í leiðsögukerfum bifreiða.

Dæmi um umferðarupplýsingar eru lokanir á vegum vegna framkvæmda, slysa eða ófærðar. Fyrirtæki eins og Here og TomTom, sem útbúa ferðaupplýsingar ofan á kortin hjá Google og eða Apple, geta með þessu móti varpað upplýsingum til notenda sinna í rauntíma.

Verkefnið var unnið með fjárveitingu sem til kom af hálfu ríkisstjórnarinnar vegna óveðursins í desember 2019. 

DEILA