Ljósmyndasýningin Spessi 1990-2020

Þjóðminjasafn Íslands er nú með í gangi sýningu á myndum ljósmyndarans Spessa.

Samtímaljósmyndarinn Spessi – Sigurþór Hallbjörnsson – hefur skapað sér einstakan stíl á sviði fagurfræðilegrar ljósmyndunar. Í verkum hans birtist iðulega blákaldur veruleikinn, ekkert fegrað og ekkert dregið undan sama hvort myndefnið er manneskjan eða umhverfið. Kimar samfélagsins í samtvinningi við menningarlífið eru áberandi í verkum hans. Val hans og efnistök eru gjarnan ögrandi en samtímis gædd mannúð og kímni. 

Spessi er fæddur árið 1956 á Ísafirði. Þangað hefur hann sótt innblástur í mörg verk eins og sést í myndaröðunum Hetjur og Úrtak. Nýjasta verkefni hans C19 var einnig tekið í heimabæ hans. Spessi nam ljósmyndun við AKI – Akademie voor Beeldende Kunst í Hollandi og útskrifaðist þaðan árið 1994. Ljósmyndir og vídeóverk hans hafa birst á fjölmörgum einkasýningum og samsýningum hér á landi og erlendis m.a. í Hollandi, Svíþjóð, Finnlandi, Lettlandi, Bandaríkjunum og Bretlandi.

Ferill Spessa spannar meira en 30 ár og á yfirlitsýningu hans má sjá þær ótal sögur sem birtast í verkum hans. Stoltar hvunndagshetjur, einmana bensíndælur, yfirgefin rými, beygluð byltingarvopn, byssueigendur, blokkaríbúar og listamenn, sumir vandræðalegir aðrir sjálfsöruggir.

Verk Spessa eru spegill á íslenskt samfélag og fela í sér mikilvæga samfélagsrýni segir í umfjöllun sýningarstjórans Lindu Ásdísardóttur um sýninguna.

DEILA