Háskólasetur Vestfjarða: Kynning á alþjóðlegu meistaranámi

Á föstudaginn 9. apríl kl. 12:00 fer fram kynning á námi í sjávarbyggðafræðum hjá Háskólasetri Vestfjarða.

Fagstjórar meistaranáms í sjávarbyggðafræði og haf- og strandsvæðastjórnun, Dr. Matthias Kokorsch og Dr. Verónica Méndez Aragón, segja frá námsleiðunum tveimur, uppbyggingu þeirra, áherslum og atvinnumöguleikum.

Fagstjórarnir og núverandi nemendur svara spurningum þátttakenda að kynningunni lokinni. Kynningin fer fram á ensku.

Sjávarbyggðafræði er eina sérhæfða byggðafræðinámið á Íslandi. Námið er þverfræðilegt meistaranám þar sem fengist er við þróun byggða í fortíð og framtíð. Námið byggir einkum á félagsfræði, hagfræði, mannvistarlandfræði og skipulagsfræði.

Haf- og strandsvæðastjórnun er þverfræðilegt meistaranám á sviði umhverfis- og auðlindastjórnunar með áherslu á hafið og ströndina. Í náminu kynnast nemendur ýmsum aðferðum við stjórnun haf- og strandsvæða út frá efnahagslegum, félagslegum og umhverfislegum forsendum.

DEILA