Aflamark í ýsu aukið um 8.000 tonn

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð þess efnis að aflamark í ýsu verði aukið um 8.000 tonn þ.e. úr 44.419 tonnum í 52.419 tonn. Sú hækkun verður dregin frá því aflamarki sem annars yrði úthlutað á fiskveiðiárinu 2021/2022.

Tilefni þessarar ákvörðunar eru erfiðleikar sem rekja má til mikillar ýsugengdar á veiðisvæðum við Ísland en þann 21. apríl var búið að veiða rúmlega 90% aflaheimilda í ýsu fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. 

Hafrannsóknarstofnun og Fiskistofa taka undir að nauðsynlegt sé að bregðast við vandanum.

Í umsögn Hafrannsóknarstofnunar segir: 

„Eins og fram hefur komið telur ráðuneytið ekki aðrar færar til að taka á vandanum, að óbreyttum lögum, en sú að aflamark verði aukið. Hafrannsóknastofnun leggst ekki gegn því að aflamark verði aukið á yfirstandandi fiskveiðiári enda verða heimildirnar dregnar frá því aflamarki sem annars yrði úthlutað á fiskveiðiárinu 2021/2022, samkvæmt samþykktri aflareglu.

Stofnunin bendir á að aukningin nú gæti valdið því að svipaður vandi komi upp á næsta fiskveiðiári og því mikilvægt að öllum verði ljóst að aukningin nú verði til frádráttar á komandi fiskveiðiári. Slík skilaboð samhliða úthlutun gætu stuðlað að því að ekki verði farið í aukna beina sókn í ýsustofninn sem aukið getur á mögulegan vanda á komandi fiskveiðiári.“

DEILA