Fimmtudagur 24. apríl 2025

Vinstri grænir: Bjarni Jónsson vill 1. sætið

Auglýsing

Bjarni Jónasson, varaþingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi hefur tilkynnt að hann sækist eftir efsta sti á lista flokksins í komandi prófkjöri. Bjarni hefur áður att kappi við Lilju Rafney Magnúsdóttur, alþm um efsta sætið. Það var fyrir kosningarnar 2016 en þá hafði Lilja Rafney naumlega betur. Bjarni býr á Hólum í Skagafirði.

Lilja Rafney hyggst gefa kost á sér áfram í 1. sætið.

Í tilkynningu á facebook síðu sinni segir Bjarni:

„Ég gef kost á mér til að leiða framboðslista VG í NV kjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar í 1. sæti og óska eftir stuðningi til þess í forvali hreyfingarinnar. Ég tel mig hafa víðtæka reynslu og þekkingu á málefnum landsbyggðarinnar og vil gjarna beita kröftum mínum í þágu kjördæmisins. Mín áherslumál í sveitarstjórn sem og á vettvangi landsmálanna hafa verið að styrkja innviði, treysta búsetu og fjölskylduvænt samfélag á landsbyggðinni. Í því felst öruggt aðgengi að góðri heilbrigðisþjónustu, menntun, gott umhverfi, samgöngubætur og fjölbreytt atvinnutækifæri við allra hæfi. Grunnstoðir atvinnulífs víða í NV kjördæmi byggja á matvælaframleiðslu og að vel sé búið að þeim atvinnugreinum og eins nýsköpun og frumkvöðlastarfi í þeim greinum, sem fleirum sem geta dafnað á svæðinu. Þá eigum við þrjá öfluga landsbyggðar háskóla og háskóla- og rannsóknasetur sem skapa svæðinu mikla sérstöðu og tækifæri sem verður að styðja með öflugum hætti og það sama á við framhaldsskólana okkar. Þá brenn ég einnig fyrir grunngildum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um náttúruvernd, jöfnuð og byggðajafnrétti, sem eiga svo sannarlega erindi til Íslendinga hvar sem þeir búa.“

Auglýsing

Auglýsing
Auglýsing

Nýtt á BB

Auglýsing

Fleiri fréttir