Vestfjarðastofa: flýta þarf samgönguframkvæmdum

Vöruflutningabíll á Kletthálsi.

Stjórn Vestfjarðastofu lýsir þungum áhyggjum af stöðu samgangna á sunnanverðum Vestfjörðum vegna ítrekaða bilana ferjunnar Baldurs. Stjórn Vestfjarðastofu hvetur Alþingi, ráðherra samgöngumála og Vegagerðina til að grípa hratt til bráðaaðgerða til að minnka þann skaða sem atvinnulíf og samfélag svæðisins verður fyrir þegar samgöngur bregðast.

Þetta kemur fram í ályktun stjórnarinnar. Þar segir ennfremur að ítrekað komi upp sú staða á Vestfjörðum að allar helstu leiðir til og frá svæðinu séu lokaðar. Stjórnin ítrekar því samþykktir sveitarstjórna um nauðsynina á því að flýta samgönguframkvæmdum.

„Það öryggisleysi sem íbúar og atvinnulíf á sunnanverðum Vestfjörðum búa nú við í samgöngum er óásættanlegt og skorað er á samgönguyfirvöld að endurskoða strax forsendur öryggismats á siglingum ferju á Breiðafirði með einungis eina vél.  Samtímis er gerð krafa að samgönguyfirvöld setji fram viðbragðsáætlun til að bregðast við bilun af því tagi sem kom upp síðasta fimmtudag þegar ferjan varð vélarvana og farþegar og áhöfn máttu dúsa um borð í skipinu í 27 klukkustundir.  Þegar saman fara þungatakmarkanir á öllum þjóðvegum og ótryggar ferjusamgöngur hafa íbúar og atvinnuíf á sunnanverðum Vestfjörðum í raun engar samgöngur hluta ársins.

Ítrekað kemur einnig upp sú staða að allar helstu leiðir til og frá Vestfjörðum lokist.  Með vélarbilun í ferjunni Baldri þá voru allar leiðir til og frá Vestfjörðum ófærar í rúman sólarhring, en þá komu til viðbótar lokanir vegna snjóflóðahættu á Súðavíkurhlíð og óveðurs á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum, Klettshálsi, Dynjandisheiði og Svínadal. Auk þess var ófært flugleiðina bæði á Bíldudal og Ísafjörð. Innan atvinnu- og skólasóknarsvæða voru leiðir einnig lokaðar.

Grunngerð og innviðir svæðisins verða að styðja við þann mikla vöxt og verðmætasköpun sem er nú þegar á Vestfjörðum og mun aukast á næstu árum.  Fjármagn sem varið er til samgönguverkefna mun borga sig margfalt til baka en allar tafir leiða til taps fyrir þjóðarbúið.  Ítrekaðar eru því ályktanir vestfirskra sveitarfélaga um flýtingu framkvæmda, en sem stendur þá munu úrbætur í samgöngumálum Vestfjarða  ekki vera að fullu komnar í gagnið fyrr en að fimm árum liðnum auk þess sem grípa verður til bráðaaðgerða líkt og með ferjuna Baldur.“

DEILA