Ráðstefna um tengsl jafnréttis og byggðaþróunar

Norræna upplýsingasetrið um kynjafræði (NIKK) og Norræna rannsóknarstofnunin um byggðaþróun (Nordregio), standa fyrir opinni vefráðstefnu fimmtudaginn 25. mars kl. 12:00-13:45 um tengslin milli jafnréttis og svæðisbundinnar þróunar.

Á ráðstefnunni, sem ber yfirskriftina Jafnrétti – lykillinn að hagsæld dreifbýlisins, verður farið yfir það sem læra megi af rannsóknum og forvirkum stefnum (e. proactive policies) á þessu sviði, sérfræðingum í byggðaþróun og frumkvöðlum frá einangruðustu stöðum Norðurlandanna.

Um ráðstefnuna segir að íbúasamsetning á Norðurlöndunum breytist hratt. Öldrun, fólksflutningar og þéttbýlismyndun skapi áskoranir hvort tveggja fyrir vinnumarkaðinn og velferðarkerfið, sérstaklega í dreifbýli fjarri stærri þjónustukjörnum. Yfirstandandi heimsfaraldur hafi verið sem olía á eldinn og viðbrögð við faraldrinum mismunandi milli ríkja og landsvæða. 

Tvær nýjar skýrslur benda á mikilvægi þess að hafa kynjasjónarmið með í svæðisbundinni stefnumótun og áætlanagerð, sérstaklega á afskekktum svæðum.

Því væri það viðfangsefni ráðstefnunnar og sérfræðinga á þessum vettvangi að kanna hvort dreifbýlið gæti verið brautryðjandi í að brjóta upp staðalímyndir kynjanna með því að móta jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs fyrir ungar fjölskyldur og frumkvöðla.

DEILA