Grásleppuveiðar heimilaðar frá 23. mars

Samkvæmt reglugerð sem Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað verður heimilt að hefja grásleppuveiðar 23. mars nk.  

Helstu atriði reglugerðarinnar eru flest óbreytt frá því sem var á vertíðinni 2019 að undanskildum ákvæðum um svæðalokanir sem sett var í reglugerð um hrognkelsaveiðar 2020:

  • Leyfi verður gefið út til 25 samfelldra daga
  • Leyfi verða bundin við ákveðið veiðisvæði og veiðitímabil
  • Veiðisvæðin verða sjö – merkt A – G. (Svæði B er Breiðafjörður)
  • Veiðitímabil 23. mars til og með 30. júní, nema á innanverðum Breiðafirði 20. maí og með 12. ágúst.

Nýmæli er í reglugerðinni að Fiskistofu er skylt að fella úr gildi leyfi á öllum veiðisvæðum utan þeirra sem tilheyra svæði B til að koma í veg fyrir að heildarafli á þeim svæðum fari umfram 78% af ráðlögðum hámarksafla.  

Það ákvæði á jafnframt við svæði B þar sem viðmiðið er 22%.

DEILA