Djúpið: Háafell stefnir að setja út fyrstu laxaseiðin 2022

Þessa dagana er verið að auglýsa hjá Matvælastofnun og Umhverfisstofnun tillögu að starfs og rekstrarleyfum fyrir 6.800 tonna eldi Háafells á laxi í sjókvíum í Ísafjarðardjúpi og er reiknað með að setja fyrstu laxaseiðin út í Skötufjörð vorið 2022 Hins vegar verða fyrstu regnbogaseiðin sett út núna strax í maí 2021. „Það sér því loks fyrir endann á um 10 ára löngu og ströngu umsóknarferli til þess að geta alið lax og regnbogasilung í Ísafjarðardjúpi á vegum Háafells.“ segir í frétt um málið á heimasíðu Hraðfrystihússins Gunnvarar hf.

Haustið 2018 fékk Háafell starfs-og rekstrarleyfi fyrir stækkun seiðaeldisstöðvar sinnar á Nauteyri úr 200 tonna lífmassa á ári í 800 tonna lífmassa á ári og í júní 2020 var svo gefið út að nýju leyfi fyrir eldi á regnbogasilungi í Ísafjarðardjúpi.

Á Nauteyri er starfrækt seiðaeldisstöð Háafells og þar hefur verið unnið að því að auka afkastagetu stöðvarinnar og bæta tækjakost sem skilar sér í aukinni velferð fyrir fiskinn og betri vinnuaðstöðu fyrir starfsmenn. Vestfirskir verktakar hafa auk þess verið að reisa fóður- og vélaskemmu og nú nýlega hófst uppsetning á fjórum nýjum eldiskerjum í öðru eldishúsanna sem koma í stað fjölda eldri og smærri kerja.

Á Suðurtanga á Ísafirði hafa að undanförnu verið starfsmenn frá færeyska fyrirtækinu KJ Hydraulics að setja saman kvíar sem fara eiga á nýtt eldissvæði Háafells innan við Æðey í apríl. Um er að ræða þrjár 160 metra kvíar (ummál) en í þær verður settur regnbogasilungur frá seiðastöðinni á Nauteyri. Á Mávagarði eru festingar fyrir kvíarnar en Sjótækni mun setja þær festingar út og stilla af þegar veður leyfir. Auknum umsvifum og nýju eldissvæði fylgir aukin mannaflaþörf og hefur Háafell því auglýst eftir fleira starfsfólki.

Einar Valur Kristjánsson er framkvæmdastjóri Háafells: „Það er virkilega gleðilegt að nú um 10 árum frá fyrstu umsókn okkar séu hlutirnir loksins að gerast. Háafell hefur alla tíð lagt höfuðáherslu á að fara varlega í sakirnar og byggja þessa nýju atvinnugrein uppá bestu fáanlegu þekkingu og vísindum eins og umhverfismatsferli okkar ber merki um. Móðurfélag Háafells, Hraðfrystihúsið- Gunnvör hf. er búið að starfa hér við Ísafjarðardjúp í 80 ár og hyggst gera það áfram, eldið er einn liður í því og jafnframt aukum við verðmætasköpunina á svæðinu og fyrir þjóðarbúið, en það er ekki vanþörf á því þessa dagana. Heilt yfir erum við spennt fyrir verkefninu og eru starfsmenn okkar á fullu við að skipuleggja frekari framkvæmdir.“

Myndir: Háafell.

DEILA